Kerfóðrun var boðið ásamt einum öðrum verktaka frá Íslandi að taka þátt í byrgjafundi Rio Tinto Alcan sem haldinn var í París, en á þennan fund eru þeir verktakar sem hafa skarað fram úr að mati RTA boðaðir. Á fundinum kom fram að áframhaldandi samdráttur verður í áliðnaðinum næsta ár og jafnvel lengur. Þá var Íslensku verktökunum hrósað sérstaklega vegna þeirra framlags til að ná fram sparnaði.
Fréttir
Fylgstu með
Starfsmannafélagið stóð fyrir golfmóti á Sveinskotsvelli Keilismanna. Þátttaka var mjög góð og var hópnum skipt upp í fjögur lið. Lið Daníels Einarssonar náði að knýja fram sigur á síðustu holunum og sýndu menn mjög góða takta. Á eftir fengu menn hressingu og góða máltíð að hætti Brynju í golfskálanum.
Ísal hefur ákveðið að hætta við breytingar á straumleiðurum kerskála 1 og 2. Aðkoma Kerfóðrunar hefur verið talsverð í þessu verkefni og er ekki vitað hvaða áhrif þetta mun hafa á verkefnastöðu okkar á komandi mánuðum, en það mun skýrast á næstu vikum.
Fyrsta áfanga í 5-S verkefni lauk um miðjan janúar, en verkefnið felst í því að skipuleggja vinnusvæðið og merkja svæðið upp þannig að hver hlutur hafi sinn ákveðna geymslustað og fylgt verður eftir að vinnusvæði verði haldið hreinu. Boðið var upp á tertur af þessu tilefni.
Kerfóðrun þarf samkvæmt ósk Ísal hefur lagt hugmyndir til að koma á móts við kröfur Ísal um að ná hagræðingu í rekstri. Þessar hugmyndir munu hafa umtalsverða skerðingu á tekjum Kerfóðrunar til loka árs 2013.
Kerfóðrun og Hrif heilsuefling gerðu með sér samning um að Hríf tæki að sér bólusetningar og heilsufarsmælingar á starfsmönnum Kerfóðrunar ásamt námskeiðum í líkamsbeitingu og fyrstu hjálp. Gert er ráð fyrir að heilsufarsmælingar byrji á næsta ári. Hrif hefur séð um bólusetningar undanfarin ár hjá Kerfóðrun